onsdag den 7. maj 2008

Bloggedí blogg

Jæja ég verð víst að afsaka aðeins bloggleysið en þannig stendur á að það er bara alltof gott veður til að hanga í tölvunni það eina sem maður getur gert er að vera í pilsi og hlýrarbol og vaða eða stökkva útí vatnið reglulega til að lifa af. Og þar sem að ég er ekkert alltof hrifin af hita þá er ég alveg að drepast og komin með bæði bruna og brúnku sem gerist ekki oft.

Held að það sé alveg kominn meira en mánuður síðan ég hætti að borða brauð fyrir utan eina sammloku fyrir viku eða svo en eftir hana komst ég að því að brauð er of þungt í maga og bragðast ekkert neitt vel þannig að ég er nánast alveg hætt í brauðinu eina brauðið sem ég borða eru pizzubotnar :D

Búin að eyða deginum í dag í þynku og sólbaði þar sem ég og nokkrar vinkonur mínar ákváðum að byrja að drekka klukkan 3 um daginn í sólinni og var ég orðin blindfull rétt eftir kvöldmat og vorum við allar heldur skrautlegar.

Ida og Ida komu í heimsókn síðasta föstudag og fengum við þær til að vera hjá okkur eina nótt þannig að við skelltum okkur á djammið á föstudeginum sem var bara helvíti fínt djamm og svo var skellt sér í legoland á laugardaginn :) læt fylgja nokkrar myndir með










Í monorail



Ida sæta með nýju klippinguna





Kobenhavn Ida breyttist í víking í legolandi



Svo auðvitað uppáhalds stelpurnar mínar Hugrún og Kristin eða Tittí nota bene kristin var allann daginn klædd eins og norskur Russ og vakti svolitla athygli :)

Ingen kommentarer: